24.4.04

Já Sófus er allur

Mér finnst ótrúlegt að þurfa að rita þessi orð til þín núna Sófus minn. Í blóma lífsins ákvaðstu að kveðja þennan heim og halda á vit eilífðarlendna endurvinnslunnar. Eftir langa, erfiða og oft tvísýna baráttu, var svo komið að okkur var öllum ljóst að þetta stríð var tapað. Þú varst alltaf svo sterkur og góður, veittir okkur skjól og hlýju og huggaðir okkur á erfiðum stundum með þínum glaða græna lit og gildu örmum. Sorgin er sár Sófus, en við sem eftir stöndum munum ætíð minnast þín með sól í hjarta okkar. Vertu sæll kæri vinur.

Þeim sem vildu minnast Sófuss er bent á að heimsækja æskustöðvar hans hér.