Nyt liv for alle, nyt liv for dig...
söng ég af öllum lífs og sálarkröftum á SUM 1982. SUM er, fyrir ykkur sem ekki vitið, kristilegt skólamót sem kallast á útlensku skoleungdomsmote. Svona stuðsamkomur sótti ég fyrir öllum þessum árum og óraði ekki fyrir því að þessar línur ættu eftir að enduróma í huga mér á nýrri öld. Kannski eru þessar línur mér svona hugleiknar þessa dagana vegna djúpra pælinga minna um nýtt líf og hvað það hugtak geti þýtt.
Þannig þurfum við hjónaleysin að takast á við nýtt líf án græna sófans. Eflaust halda einhverjir, eftir tregafull orð okkar, að við sitjum hnípt á gólfinu í söknuði en það er nú öðru nær. Þegar eitt líf fjarar út, tekur annað við. Það gildir líka um sófa. Sá græni var mikil fjárfesting á sínum tíma, en nú eru aðrir tímar og því var sjónum beint að ódýrum lausnum. Klippan-sófinn sænski var á kreppuverði, er ægilega stílhreinn og hentar vel fyrir hækju sem vill einfalda líf sitt. Hann var einmitt hannaður í herbúðum IKEA árið 1982, eða sama ár og ég fór til Tonsberg til þess að tilbiðja Jesú með söng mínum. Nýja lífið, sem ég og allir skandinavísku, trúuðu krakkarnir sungum um, mætti því ef til vill heimfæra upp á sófann. En hlægilega ódýr sófi kallar á meiri fjárfestingar og því varð úr að ég lét drauminn rætast og keypti mér 4 samstæða stóla við borðið mitt. Á minni 15 ára búskapartíð hef ég aldrei átt samstæða stóla og hef því hafið nýtt líf í alrýminu.
En nýtt líf á ekki eingöngu við líf með eða án húsgagna. Þannig þarf heimilishomminn að hefja nýtt líf með ör. Þetta tilvonandi ör er afleiðing fólskulegrar árásar listamanns með bjórflösku. Það var reyndar lán í óláni að maður þessi, skyldi þó vera þetta listrænn. Þannig tókst honum að henda flöskunni svo smekklega að sár það, er af kastinu kom, er í beinu framhaldi af augabrúninni og í samskonar fallegum boga. Áverkarnir munu því ekki á neinn hátt draga úr fegurð hommans. Hans nýja líf verður alveg jafn fallegt og áður.
Mitt nýja líf er í daglegri vinnslu. Í því verð ég bomba, beib og bjúti...

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home