Allar heimsins lystisemdir og fleira til
Lífið á það til að koma manni skemmtilega á óvart. Hversdagslegir atburðir reynast oft á annan hátt en maður býst við og býr sig undir. Undanfarnir dagar hafa lumað á ýmsu sem komið hefur mér á óvart.
Ég átti til dæmis ekki von á því að matarboð og rauðvínssull með nær ókunnugum manni gæti orðið öðruvísi en örlítið þvingað. En það kom mér einmitt á óvart hvað það var gaman að fá nýjar skoðanir og sjónarmið inn á Nönnukaffi. Takk Fjalar, þú ert alltaf velkominn í hús.
Er ég bjó mig undir fimmtugsafmæli á s.l. helgi átti ég nú ekki von á neinu stórkostlegu öðru en að hitta móðurfjölskylduna og eiga þægilegar samræður. En það kom mér á óvart hvað ég er heppilegur gestur í slík afmæli. Fyrir utan trúnaðarsamtölin við hina og þessa þá veit ég það núna að uppskriftin að góðu samkvæmi felst í Queen, Elvis, Barry White og Geirmundi. Þetta vita eflaust flestir, en mikið sem það kom mér þægilega á óvart.
Er ég, í félagi við húshommann og annað gott fólk í húsinu, arkaði svo daginn eftir út í kuldann til þess að taka til í okkar ranni var ég grunlaus um það að ég myndi lenda í útistöðum við nýjan íslending. En þannig er að í portinu í húsinu eru 2 ólöglegar íbúðir sem hýsa undarlegt fólk. Í annarri íbúðinni býr maður um fertugt sem hlustar á skrýtna tónlist og horfir á þýskar klámmyndir á nóttunni og hefur hátt. Í hinni býr kona af erlendu bergi brotin ásamt 1-2 unglingsstrákum. Það var einmitt hún sem ég átti orðastað við eftir tiltektina miklu. Deilan snérist um kassa, eins og flestar deilur gera, og það var í henni sem ég sagði þá ágætu setningu "what geymsla". Það hefur komið mér mikið á óvart hversu auðveldlega ég aðlagaðist slæmu enskunni hennar og gerði að minni.
Það kemur mér ævinlega á óvart hvernig góð hugmynd að kveldi getur reynst svo slæm daginn eftir. Er við hjónaleysin kvöddum Beðmálin í félagi við vin okkar Hannes, þótti mér það snjöll hugmynd að hrista í Cosmopolitan þeim til heiðurs. Það var frábær hugmynd, ég fékk leiftur í augun á fyrsta hanastéli, mikla frásagnargleði á öðru og barlöngun á síðustu sopanum. Við fórum því á næsta bar, hverfisbarinn okkar Ölstofuna og ég kom heim vel slompuð. Í dag hefur mér lítið þótt til þessarar hugmyndar koma enda heilsan í lakara lagi. En það hefði kannski ekki átt að koma mér á óvart...

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home