Þá,nú og síðar
Best að byrja á sömu nótum og ég endaði fyrir viku. Í gærmorgun eignuðust Birna mín Málmfríður og Heiðar litla hnátu, sem er velkomin viðbót í Skólavörðuholtið og 11 mínútum síðar eignaðist Erna Sigrún ísfirska hnátu. Og í dag er frk. Birna Júlía SunnuogSteinadóttir ársgömul.
Og frá gleðitíðindum í tíðindi vikunnar. Mikið hefur gengið á hér á Nönnugötunni undanfarna viku. Spýtur, skjannahvítt, háglansandi lakk og álprófílar hafa nú breyst í glæsilegar bókahillur sem prýða heilan vegg. Og ég veit að tiltekinn bókahommi gleðst yfir þeim fréttum. Samhliða þeirri vinnu sýndum við homminn snilldartakta, hvort á sínu sviði, til hjálpar Kiddý vinkonu okkar sem var að klára útskriftarverkefnið sitt við Listaháskólann. En það er kannski ekki öllum ljóst, að hjartagæskan er alltaf í fyrirrúmi á Nönnukaffi.
Eftir svefnlitlar nætur skunduðum við á tískusýningu í Hafnarhúsi á laugardaginn, þar sem fyrrnefnd verk voru ótvírætt og sé fyllsta hlutleysis gætt, það flottasta á sýningunni.
Er við, seinna þennan sama dag, lögðumst til hvíldar grunaði okkur ekki að það gæti farið nærri því að kosta okkur hommajólin. Þökk sé símhringingu nokkrar mínútur í 7, að svo fór ekki. Þveröfugt við fyrri fyrirætlanir vorum við ein á báti við eurovision-áhorf, en fengum félagsskap Hannesar og vinkonu hans við stigagjöfina. Restin af kvöldinu innihélt partý út á nesi, karoke, cosmo, meindýraeyði, drukkinn ökumann, mikinn dans og þreytta hækju.
Nú er ég "grasekkja" í 4 daga. Sambýlishomminn horfinn á vit húsa og annarra ævintýra í Berlín og eftir sit ég.
Framundan er hins vegar útskrift Ellýjar vinkonu minnar, Körper á Listahátíð, útskrift Báru frænku úr MBA-námi, Kiddýjar úr LHÍ og Edit Piaf með heimilishommanum og Hannesi. Og ábyggilega margt annað sem ég kann ekki skil á enn...

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home