11.5.04

"Því ég án þín og þú án mín er skrýtla sem að skortir grín"

Við, homminn og hækjan, eigum sitt hvorn afmælisdaginn. Í dag er annar þeirra. Ekki minn. Afmælisdrengurinn er 28 ára í dag, ég er aðeins eldri og á afmæli sama dag og Davíð Oddsson stimplar sig út í síðasta sinn úr stjórnarráðinu. Minn dagur er því að mörgu leyti merkilegri, en það er óþarfi að orðlengja það að sinni.

Afmælisdrengurinn er besti vinur minn og að auki mörgum hæfileikum gæddur. Hann kann að teikna hús, spilar á píanó og kann að spila "vem kan segla" á gítar. Hann veit óhugnanlega mikið um júróvisjón og hefur starfað hjá Fiski 2000 á Blönduósi og verið bæjarfulltrúi á Ísafirði. Hann kann að prjóna og fylgist vel með heimsmálum og stjórnmálum. Hann er vinstrisinnaður og sem betur fer að verða örlítið róttækari með árunum (öfugt við suma aðra homma í okkar lífi...). Hann er með græna fingur og þrífur betur en ég.

Afmælisbarn dagsins er óskaplega fallegt karlmannseintak, gáfaður, kann að bora í veggi, mála og tengja ljós. Hann kann ekki að elda en er kominn með hina sæmilegustu upphandleggsvöðva.

Til lukku með daginn elskan.