Ég vildi ég kynni að meta tuðruna...
Já nú gæti svo sannarlega verið hátíð í bæ á Nönnugötunni. Stór og mikil veisla og af nógu af taka.
Sjónvarpið er undirlagt af því mest æsispennandi efni sem sögur fara af og svo eru þeir líka svo liðlegir hjá RUV að endursýna þetta í gríð og erg, fara yfir stöðuna og taka út frammistöðuna. Fréttum er lipurlega skotið á frest til hægðarauka fyrir áhugamennina (ég meina eru þær hvort eð er ekki bara aukaatriði þegar önnur og mikilvægari málefni knýja dyra?)
Þetta er nú samt bara hluti af veislunni. Nú streyma inn tilboðin tengd þessari hátíð. Ef ég t.d. nota Visa kortið mitt oftar og betur (og þar með legg mitt af mörkum til að glæða bæði hagvöxt og verðbólgu) á ég þess hvorki meira né minna en kost á að detta í sannkallaðan lukkupott og jafnvel komast á fótboltaleik (erlendis!) í kjölfarið. Þvílík og önnur eins hamingja.
Svo á ég líka möguleika á ýmsum tilboðum og afsláttum af margskonar knattleiksvarningi. Ég get fengið mér hár (mér skilst að það sé hárleysi núna) eins og Metróhomminn Beckham fyrir skít á priki og nú get ég líka borðað flatbökur á sérstökum knattspyrnutilboðum. Nú ef ég svo þamba kók sem mest ég má með knattbökunum get ég eflaust unnið eitthvað tengt þessari miklu veislu, kannski lyklakippu eða eyrnalokk, hver veit?
Það gæti því verið sannkölluð veisla hér á Nönnugötunni þessa dagana. Mætti svei mér þá líkja því við hálfgerða himnasælu. En einn er þó sá galli á þessari gjöf Njarðar.
VIÐ HÖFUM ENGAN ÁHUGA Á FÓTBOLTA!

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home