Á fleygiferð
Ég ekki löt að blogga. Þvert á móti þá blogga ég á hverjum degi í huganum og síðustu dagana hef m.a.s komið einu slíku aðeins lengra. Ég er sum sé búin að skrifa langt og mikið blogg sem ég hreinlega kem ekki frá mér. Bendillinn ratar ekki í rétta átt.
Ég hef því verið að velta því fyrir mér hvað valdi. Líklega er skýringin sú að tiltekið efni sé enn of viðkvæmt fyrir mér til þess að ég geti klárað dæmið. Ég er nefnilega að skrifa um ferðalag.
Ekki samt ferðalag frá einum stað til annars. Ja, og þó, í huglægum skilningi. Kannski er það klisja að kalla það ferðalag, en mér dettur ekkert betra í hug. Ferðalag sem er rétt að hefjast og er langt í frá að verða lokið.
Ferðalag sem ég er ein að upplifa og enginn getur skilið nema viðkomandi sé ég. Mín upplifun á því að kveðja 65 kíló á 7 1/2 mánuði. Finna fyrir endalausum breytingum og reyna að skilja þær samtímis því að bíða spennt eftir fleiri breytingum.
Bloggið sem ekki kemst á áfangastað er um listann minn. Listann sem ég gerði í janúar um alla þá hluti sem ég ætla mér að gera í mínum mjóa heimi. Sumt hef ég þegar gert. Mun fyrr en ég bjóst við. Annað er eftir, enda langt ferðalag fyrir höndum.
Ég sagði við góða vinkonu mína, í spjalli um x-lover, að maður ætti kannski ekki að súpa vín úr gömlum belgjum. Kannski ég láti það gilda um fleiri hluti. Prófi hér eftir bara e-ð nýtt, eins og t.d. paraglider.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home