Í sól og sumaryl...
...fór ég á hæli
Þar trítlaði ég léttfætt með kraftgöngustafi í höndum um hóla og hæðir og fann mína íþrótt. Þar slasaði ég mig á golfkylfu. Þar beraði ég einnig annað brjóst mitt í tvígang í þeirri þokkafullu íþrótt er vatnsleikfimi heitir. Þar setti ég hælismet í fitutapi (8,3% á mánuði, segir mér samt lítið). Þar uppgötvaði ég að ég hef lítið á hæli að gera.
... fór ég í sumarfrí.
Í því naut ég góðs félagsskapar fólks og áfengis í Grímsnesi, hlustaði á finnskan tangó í kvöldblíðu við vatn og sagði, mér nær ókunnugu fólki, ýmislegt spennandi um kynlíf mitt (og þá annarra í leiðinni) í þeim ágæta samkvæmisleik "ég hef".
Í því keyrði ég til höfuðstaðar Vestfjarða með mínum homma, lá og tyggði strá í Bjarkarlundi í vestfirskri veðurblíðu og svamlaði í sundi í Reykjanesi í kvöldsólinni.
Í því fór ég líka upp á Bolafjall í sömu vestfirsku ofurblíðunni og fór í skógargöngu með homma og öðrum í kvöldblíðu.
...tók ég virkan þátt í skemmtanalífi borgarinnar.
Og er lítið um það að segja annað en að nú er ég dús við Glóbó, Veturliða og fleiri góða menn og er því farin að feta mig út í hinn ólgandi heim skemmtanalífs gagnkynhneigðra.
...var mér boðið í veislur.
Ég fór í afmæli til Jóns Þórs stórbónda í Borgarfirði. Ég var glöð, hreif, söng og tjúttaði til morguns. Daginn eftir var ég ekki eins hress.
Ég fór í brúðkaup Sunnu og Steina. Ég var sæt, skemmtileg, bar titilinn tónlistarstjóri fjöldaflutnings, söng Sugar town í statíf með Elínu og fékk fullt af fallegum athugasemdum um visnun mína og ótvíræða fegurð. Daginn eftir var ég samt ekki hress.
..hef ég vanrækt blogghæfni mína.
Þetta er tilraun til að bæta þar úr.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home