11.11.04

Bubbly character

Dagar mínir eru senn taldir. Í dag kveð ég frændfólk mitt íra og held heim á leið. Dagurinn byrjaði á sömu nótum og þeir hafa nú flestir verið, stórnefja bílstjóri á steypubíl horfði á mig lostafullum augum, þar sem ég stóð með stírurnar í augunum og blés reyk þokkafullt út í morguninn. Ekki það að ég hafi rekist á marga steypubílsstjóra. En hins vegar gat ég ekki annað en velt því fyrir mér hvursu langt virtist vera síðan ég var í sporum hans og steypti minn sturtukant í litla baðherberginu mínu langt, langt í burtu. Já, sturtukanturinn minn góði.

En aftur að Írlandi og ekkert strákaröfl meir. Yndislegur endir á yndislegri dvöl var leikhúsferðin okkar í gærkveldi. Þangað strunsaði stelpan, dulbúin sem gestanemandi í drama og performance studies. Ætlunarverkið tókst og ég naut hverrar mínútu. Ekki skemmdi það fyrir að það var ægilega sætur leikari í verkinu. Já, já það er víst nóg af þeim.

En ekki get ég farið héðan án þess að skella fram lista með helstu hápunktum. En áður en að því kemur verð ég að leiðrétta mig í fyrsta og síðasta sinn. Það geri ég af illri nauðsyn og vegna þrýstings frá gestgjafa mínum. Hún hefur of mikið á mig þessa dagana.

Leiðrétting: Elín er ekki leiðinleg.

En þá kemur listinn.

BEST OF IRELAND

Pennys. Ódýrt og hentar minni buddu.
Dublin by lamplight. Leikritið góða.
Klósettburstinn. Gerði mér ferð út á land til þess að kaupa hann.
Wheelans. Þarfnast ekki útskýringar.
Írskir karlmenn. Bestir allra.

Slodger