8.11.04

Chuce arla!

Eru orð sem ég lærði á einum aðalbarnum í Dyflinni s.l. laugardagskvöld. Eftir að ég hafði fínpússað framburðinn tók ég til við að nýta mér þessi sömu orð við mikla og einlægu hvatningu kennara míns. Hann hafði m.a. sagt mér að merking orðanna væri t.d "you´re fantastic and have a great day" og því fannst mér upplagt að breiða út þennan fallega boðskap til allra sætu strákanna í kringum mig. Ja, allt þar til sá allra sætasti stoppaði mig af og benti mér á að ég væri galandi e-ð IRA-hugtak út um allar jarðir. Skæruliðinn Duffster, vinur minn sem gerði mér grikkinn, var hins vegar í sæluvímu yfir vel heppnaðri árás á fávísan íslending. Ekki það að rétt merking chuce arla sé neitt agaleg, en það hefði verið leiðinlegt hefði ég verið þess valdandi að Wheelans logaði í slagsmálum milli andstæðra fylkinga.

Fyrr um kvöldið, vorum við stöllur reyndar staddar annað kvöldið í röð, á hverfisbar í Blackrock. Þar hittum við fyrir vini okkar frá því kvöldinu áður, pool-gæjann Peter, Derek, sem er nýfluttur í hverfið og fræddi okkur mikið um land og þjóð og aðalvini okkar, Sean og Patricia, hjón sem hafa verið gift í 41 ár og orðið 6 barna auðið. Þau hin síðastnefndu mæta á Avoca á hverju kvöldi og hafa gert í mörg ár. Þeim finnst við yndislegar og eiga dóttur sem fer í brúðkaup til Reykjavíkur í sumar. Á föstudagskvöldið sungum við Sean söngleikjalög saman við barinn, en nú var hann heldur í drukknara lagi, blessaður kallinn. Patricia neitaði hins vegar að hlusta á annað en að hún fengi að kaupa umgang fyrir okkur íslensku gellurnar. Þau eins og aðrir, sem við hittum þarna, voru mjög spennt fyrir eldgosinu og höfðu séð myndir í sjónvarpinu. Það hafði líka gráhærði, skeggjaði kallinn sem ég hitti í reykpásu. Hann var þó áhugasamari um mig en eldgosið, og spurði hvort ég hefði skóóórd. Það tók mig 5 mínútur að skilja að aumingja maðurinn hafði bara einlægan áhuga á að vita hvort að karlamálin blómstruðu í Írlandi. Írar eru svo kurteist fólk.

En aftur að Wheelans. Þar var skemmtileg tónlist, subbulegir barir, kurteist fólk og svoooo sætir strákar. Þessi allra sætasti bauð mér sætið sitt, hélt ég væri 13 árum yngri en ég er, furðaði sig á því að ég væri ógift, fannst ég voða falleg og sagði það á 5 mínútna fresti, móðgaðist ef ég eyddi orðum á aðra karlmenn og sleppti ekki hendinni á mér. Hann er voða sætur, ungur í college. Hann á líka vin, sá var skotinn í Lellu. Þetta var allt saman voða fallegt.

Slodger!